Færsluflokkur: Vefurinn

Maður mánaðarins ( KK ) og dagurinn í dag, 30. apríl + www.1964.is

Í dag, 30. apríl, er 30 ár frá því að ég fermdist! Já ég endurtek 30 ár! Ég veit ég lít ekki út fyrir að vera deginum eldri en tuttuguog...... en svona bara er þettaGrin. Til hamingju allir úr árgangi 1964! Þessara merku tímamóta verður minnst með frábæru fermingarbarnamóti um sjómannadagshelgina n.k. Og þá er komið að því að kynna mann aprílmánaðar en það er að sjálfsögðu félagi KK frá Sjónarhóli ( Kristján Jónsson Kristjánsson ). Það er margt hægt að segja um kappann en ég ætla að láta eitt duga. Hann er uppspretta óþrjótandi hugmynda! ( læt vera að segja hvað verður um þær allar LoL ) Nýjasta afurð KK er vefurinn www.1964.is frábær hugmynd sem ég vona svo sannarlega að slái í gegn og Kiddi geti selt. Þetta er vefur árgangs 1964 hér í Neskaupstað, samanstendur hann af rúmlega 50 sjálfstæðum heimasíðum hvers og eins okkar úr árganginum. En sjón er sögu ríkari, endilega skoðið síðuna og gefið mér komment á hvað ykkur finnst. KK - maður apríl mánaðar.

Meðfylgjandi mynd er af hluta þessa frábæra árgangs, þeir sem fermdust fyrir hádegi.

64_argangur_fermdur_1978

Höfundur

Eysteinn Þór Kristinsson
Eysteinn Þór Kristinsson
Hef skoðanir á öllu og þykist vita allt betur en aðrir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 62550

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband