Færsluflokkur: Spaugilegt

FBI´s Most Wanted :-)

Eins og kemur fram á síðunni www.1964.is leitar árgangur 1964 leitar nú logandi ljósi af einum félaga sinna. Fyrirhugað fermingarbarnamót í sumar er í hættu finnist viðkomandi ekki. Höfum við nú fengið FBI í lið með okkurLoL

banner smellið á myndina! Grin


Orð dagsins - Nafnagáta

Mig minnir að karl faðir minn hafi laumað þessari vísu að mér. Í hverri línu er að finna eitt karlmannsnafn:

Einn í dufti ávallt skríður
annar skort á mörgu líður
oft hinn þriðja eykir draga
auga úr kind vill fjórði naga
er sá fimmti aðkomandi
ætla ég sjötti í veggnum standi
sjöundi gamall alltaf er
áttunda á hverri nál þú sérð
níundi múgur nefnist manns
nafn ber tíundi skaparans
ellefti verður aldrei beinn
á þeim tólfta er saur ei neinn.


Höfundur

Eysteinn Þór Kristinsson
Eysteinn Þór Kristinsson
Hef skoðanir á öllu og þykist vita allt betur en aðrir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband