Orð dagsins - lóan er komin

Lóan er komin að kveða burt snjóinn,
að kveða burt leiðindin, það getur hún.
Hún hefur sagt mér, að senn komi spóinn,
sólskin í dali og blómstur í tún.
Hún hefir sagt mér til syndanna minna,
ég sofi of mikið og vinni ekki hót.
Hún hefir sagt mér að vakna og vinna
og vonglaður taka nú sumrinu mót.

Páll Ólafsson
1827-1905

mbl.is Fyrstu stelkarnir sáust í Hornafirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Söfnum fyrir lögbrjóta

Endilega stofnum reikninga fyrir alla lögbrjóta landsins og söfnum handa þeim, við Íslendingar erum svo gjafmildir! Hvað er eiginlega í gangi! Hannes hefur fengið dóma bæði hérlendis og erlendis fyrir afbrot. Menn eru saklausir uns sekt er sönnuð, sekt Hannesar er sönnuð og hann því lögbrjótur. Hann stal frá Halldóri Laxness og fleirum, sektin hans er örugglega lægri en tekjur hans af sölu á ævisögu Halldórs! Annars vona ég að þetta sé grín. Trúi ekki að fólk sé svona vitlaust!
mbl.is Söfnun fyrir Hannes Hólmstein
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Léttur sigur!

Sigurinn aldrei í hættu hjá mínum mönnum!LoL Menn verða að fara að hætta þessum rugltæklingum. Ekki viljum við sjá fleiri Eduardo fótbrot. Burt með þessar sólatæklingar!!Angry Góðar skiptingar hjá master Wenger. Go go GunnersSmile


mbl.is Ótrúlegur sigur hjá Arsenal - Derby fallið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Orð dagsins - Nafnagáta

Mig minnir að karl faðir minn hafi laumað þessari vísu að mér. Í hverri línu er að finna eitt karlmannsnafn:

Einn í dufti ávallt skríður
annar skort á mörgu líður
oft hinn þriðja eykir draga
auga úr kind vill fjórði naga
er sá fimmti aðkomandi
ætla ég sjötti í veggnum standi
sjöundi gamall alltaf er
áttunda á hverri nál þú sérð
níundi múgur nefnist manns
nafn ber tíundi skaparans
ellefti verður aldrei beinn
á þeim tólfta er saur ei neinn.


Orð dagsins - Salka Valka

Salka Valka er ein þekktasta og vinsælasta saga Halldórs Laxness og kannski upphafið að alþjóðlegri frægð hans. tilvitnunin í síðasta bloggi kemur einmitt frá Sölku: „ þegar öllu er á botninn hvolft þá er lífið þó umfram alt saltfiskur en ekki draumaríngl.“ Á þetta ekki vel við einmitt í dag þegar allt er að fara til and.... í þjóðfélaginu. Hafa þarf fyrir hlutunum og ekki bara sitja með hendur í skauti og bíða!!

Gunnar vinur minn Þorsteinsson kom með góða tillögu að upphafsmanni orðanna - lífið er saltfiskur - Guðjón heitinn Marteinsson. Ekki efa ég að Gauji hefur örugglega oft sagt þetta ( allavega hugsað ) í saltfiskverkuninni í den Smile en upphafið kemur frá orðsnillingnum Halldóri Laxness.

„Ekkert á jörðinni er eins yndislegt og sönn ást milli pilts og stúlku í góðu veðri um nótt á vori, þegar hestarnir eru sofnaðir í túnunum.“ ( einnig úr Sölku Völku )

„Þrá er sauðkindin en hvað er það á móts við kvenkindina.“ ( Bjartur í Sumarhúsum - sjálfstætt fólk )

Orðsnilld.


Orð dagsins - Lífið er saltfiskur

Já lífið er saltfiskur. Við höfum oft heyrt þetta en hvaðan kemur þessi speki? Hver sagði þessi fleygu orð? Ef þið hafið svarið skellið því þá í athugasemdirnar.

blogg!!

Ég sagði fyrir rúmri viku að bloggfríi væri lokið. Það reyndist algjört kjaftæði. En nú er stefnan sett á betrumbætur! Reyndar hét ég því er ég fór af stað með síðuna að blogga aldrei á hefðbundinn hátt heldur vera með útúrsnúninga, æsa menn upp og þykjast voða merkilegur. Þetta heit mitt heldur ekki núna, því þetta verður "hefðbundið blogg" um s.l. viku. Nýliðin vika var alveg meiriháttar en mjög erfið líka. Eins og ég kom að áður fór ég til Keflavíkur þar sem næst elsti sonur minn, Maríus Þór, var fermdur á Pálmasunnudag. Síðan á skírdag var elsti stjúpsonur minn, Jón Þór, fermdur. Á laugardeginum var síðan önnur fermingarveisla fyrir Maríus ( norðfirski leggurinn Smile ). Allir sem haldið hafa fermingarveislur vita að þeim fylgir töluverð vinna, hvað þá að halda tvær á þremur dögum. En eins og ég hef sagt áður er ég kvæntur kjarnorku konu og allt gekk frábærlega. Auðvitað gátum við þetta ekki tvö og nutum við dyggrar aðstoðar systkina Lilju ( Sigrúnu, Alla og Maríu ), Maddýjar tengdó, Salnýjar svilkonu o.fl. Ólöf Ósk dóttir Sigrúnar var t.d. mjög dugleg að hjálpa til með litlu grislingana og Kobbi lét ekki sitt eftir liggja. Elsku vinir án ykkar hefði þetta ekki gengið - takk takk Kissing. Sigrún kom ásamt börnum strax á mánudeginum til að hjálpa, Lilja og tengdó voru þá búnar að baka töluvert en nóg var eftir enda töluvert á annað hundrað gestir væntanlegir, samanlagt! Veislan hans Jóns Þórs var síðan haldin í hátíðarsal Nesskóla en Maríusar veisla í Sigfúsarhúsi. Gengu veislurnar í alla staði frábærlega og fermingardrengirnir voru alsælir.  Meðfylgjandi er hér mynd af köppunum.

IMG_3772 (Large)


Enn ein dómaramistökin!!

Þetta er nú hætt að vera fyndið. Í síðustu viku var löglegt mark tekið af okkar mönnum, í dag voru tveir ef ekki þrír rangstæðir í jöfnunarmarki Drogba ( allavega Drogba og Anelka ). Devil En úr þessu verðum við bara að hysja upp um okkur brækurnar og vinna rest.


mbl.is Chelsea í öðru sæti eftir 2:1 sigur á Arsenal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Orðið - samsæri

Dæmum lögleg mörk af Arsenal ( sbr. versus M´boro ) og dæmum lögleg mörk af liðum sem skora gegn United!! Samsæri að sjálfsögðu. Grin
mbl.is United á toppnum - 8 mörk á White Hart Lane
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Eysteinn Þór Kristinsson
Eysteinn Þór Kristinsson
Hef skoðanir á öllu og þykist vita allt betur en aðrir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 135
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 135
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband