Eysteinn Þór Kristinsson
Hér er af mörgu að taka og veit eiginlega ekki hvar á að byrja. En....... Er mjög vel kvæntur og samtals eigum við hjónin 6 stráka á aldrinum 8 mánaða og upp í 21. árs ( fæddir 2007, tveir 2002, tveir 1994 og sá elsti 1987 )! Er starfandi deildarstjóri tölvu- og unglingastigs við Nesskóla Neskaupstað. Íþróttir eru sennilega eitt mesta áhugamálið utan fjölskyldunnar, var í fótbolta í den og hef verið viðloðandi knattspyrnuþjálfun s.l. rúma tvo áratugi ( aðallega yngri flokkar ), þjálfa núna 5. flokk karla og kvenna hjá Þrótti Nes og sé að auki um byrjendaþjálfun félagsins, ein æfing á viku hjá 5 og 6 ára. Er einnig með íþróttaskóla fyrir 3 og 4 ára grislinga - svaka fjör. Starfið er líka áhugamál því kennsla er mjög skemmtileg og gefandi, Lilja konan mín er einnig kennari svo kennsla er oft umtalsefni á heimilinu. Er alæta á músík en samt meira inn á gömlu góðu rokki ( Zeppelin, Purple, Queen ofl ofl ). Af nógu er að taka en læt þetta duga í bili.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.3.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar