29.4.2008 | 13:16
Orð dagins - nafnið Draupnir
Gísli félagi minn Gíslason ( http://gisligislason.blog.is/blog/gisligislason/ ) skrifaði nýlega um sjaldgæf nöfn. Síðan þegar vinur okkar hann Draupnir Rúnar brilleraði bætti Gísli við færslu þar sem fram kemur að pabbi Draupnis hafi verið fyrstur Íslendinga til að bera nafnið! En hvaðan kemur nafnið og hvað merkir það.
Draupnir þýðir "sá sem af drýpur". Draupnir er ( eða var ) gylltur hringur Óðins í norrænni goðafræði. Hringur þessi var þannig í gerðinni að níunda hverja nótt drupu af honum átta aðrir gullhringir. Aðrir einkennisgripir Óðins eru atgeirinn Gugnir, hrafnarnir tveir Huginn og Muninn og hinn áttfætti hestur Sleipnir.Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Bækur, Dægurmál, Vinir og fjölskylda | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég er alltaf að læra eitthvað nýtt.
Knús...
SigrúnSveitó, 29.4.2008 kl. 14:10
Ég velti fyrir mér hvaða Sóla heitin fékk nafnið Draupnir. Hún hefur fengið nafnið úr norrænni goðafræði.
Gísli Gíslason, 29.4.2008 kl. 16:37
Norræna goðafræðin lumar á mörgum fallegum nöfnum. Enda sækja margir í þá nafnaflóru. T.d. varðskipin Óðinn, Þór og Týr. Sælgætisgerðin Freyja og sápuverksmiðjan Frigg. Erfðatæknifyrirtækið Urður, Verðandi og Skuld, o.fl., o.fl.
Eysteinn Þór Kristinsson, 29.4.2008 kl. 20:18
Þú minnist á nöfn skipa og fyrirtækja úr goðafræðinni Eysteinn. Ég hef einmitt grun um að nafnið Draupnir sé eldra sem bátsnafn en mannsnafn.
Haraldur Bjarnason, 29.4.2008 kl. 21:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.