21.6.2009 | 17:41
KFF-HK 3-2 Myndir
Enn halda strákarnir þeirra Heimis og Palla að koma á óvart. Í dag var gengið frá HK, 3-2. Reyndar var alveg óþarfi að gera hlutina svona erfiða í lokin með því að leyfa HK að skora tvö frekar ódýr mörk. Fjarðabyggð var mun sterkara liðið í dag, leyfði HK - ingum að dúlla með boltann útá velli en keyrði síðan á þá með skyndisóknum. Héraðsstubburinn , hann er reyndar um 1,90 á hæð, Högni Helgason skoraði tvö fyrstu mörkin og Ágúst Örn skoraði síðan það þriðja. Mikil og góð barátta var í liðinu allan tímann. Komnir með 13 stig og á fullt í toppbaráttuna. Svo er bara að taka Selfoss um næstu helgi. Frábært strákar og til hamingju!
Meginflokkur: Íþróttir | Aukaflokkar: Bloggar, Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 18:01 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þessi leikur var stórkostleg skemmtun. Stóri strákurinn þinn stóð sem frábærlega.
Ingibjörg Þórðar (IP-tala skráð) 21.6.2009 kl. 20:32
Já svona eiga leikir að vera. Spenna fram á síðustu stundu, flott mörk, mörg mörk, glæsileg tilþrif leikmanna, frábær markvarsla á lokamínútunni. Styrkir hjartað
Eysteinn Þór Kristinsson, 22.6.2009 kl. 11:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.