Færsluflokkur: Menntun og skóli
25.6.2008 | 15:22
Hiroshima
Þann 6. ágúst 1945, klukkan 08:15, sprakk fyrsta kjarnorkusprengjan sem notuð var gegn mannkyninu tæplega 600 metra hæð yfir miðborg Hiroshima. Á augnabliki rústaðist borgin og hátt í 100000 manns týndu lífinu. Tala sem átti eftir hækka um tugir þúsunda á næstu árum vegna áhrifa sprengingarinnar. Mannvonskan hafði tekið á sig nýja mynd.
Heimsóknin til Hiroshima var magnþrungin og tilfinningarík. M.a. skoðuðum við Hiroshima Peace Memorial Museum. Á safninu má sjá hversu ótrúlegt þetta hefur verið, myndir, munir o.fl. Ólýsanlegt í rauninni.
Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 15:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.6.2008 | 15:30
Internetið er frábært - Eysteinn sensei í Nippon
Það er erfitt að vera svona fjarri ástvinum og fjölskyldu. Sérstaklega með litla prinsa skoppandi um á heimilinu. Á stundu sem þessari er Netið alveg frábært. Ástkær eiginkona mín hefur sent mér frábærar myndir af fjörinu á heimilinu. Kíkið í fjölskyldu albúmið.
Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 15:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.6.2008 | 15:13
Eysteinn san í Japan
Reyndar er það Eysteinn sensei, því hér í Nippon eru kennarar ofarlega í virðingastiganum og því bæta Japanir orðinu sensei fyrir aftan nöfn okkar. Já dagskrá heimsóknarinnar til Japan hófst formlega í dag. Við erum 77 í mínum hópi og frá 25 löndum. Í rútuferð í dag sat ég t.d. hjá aðstoðarskólastjóra frá Eþíópíu. Í skólanum hans eru rúmlega 5000 nemendur! Bekkjardeildirnar eru líka örlítið fjölmennari en hjá okkur eða á bilinu 52 - 64! Síðan sat ég frá kollega frá Uzbekistan og Kazakstan á fyrirlestrinum í dag, svo eru þarna m.a. kennarar frá Úganda, Íran, El Salvador, Sri Lanka, Sameinuðu Arabísku Furstadæmunum, Tonga, Austurríki, Írlandi ofl. o.fl. á morgun förum við til Hiroshima, verðum þar í eina nótt, síðan tvær nætur í Kyoto, þá verður hópnum skipt upp og ég verð 5 daga í Ogaki-Gifu. Í síðasttöldu borginni heimsæki ég skóla og gisti m.a. inn á japönsku heimili í tvær nætur. Fór í tveggja klukkustunda japönsku kennslu í dag - svaka fjör.
Sayoonara
10.5.2008 | 23:47
Orð dagsins - Japan ここに私は来る
Menntun og skóli | Breytt 11.5.2008 kl. 00:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
11.4.2008 | 17:55
Virk hlustun!
Er þetta ekki það sama! Þ.e. veita viðmælandanum tilhlýðilega athygli.
Þessu "stal" ég frá kennsluaðferðameistaranum Ingvari Sigurgeirssyni ( http://starfsfolk.khi.is/ingvar/namskeid/Grunnskolinn/fasogframkomahandrit.htm ), ( Úr Litróf kennsluaðferðanna )
Virk hlustun
Eitt af því sem allir kennarar verða að tileinka sér er það sem kallað hefur verið virk hlustun (active listening). Virka hlustun má gefa til kynna með margvíslegum hætti. Í fyrsta lagi að sýna með látæði að verið sé að veita því athygli sem aðrir segja, t.d. með svipbrigðum, með því að horfa með athygli á þann sem talar eða með því að kinka kolli. Virka hlustun má einnig sýna með því að bregðast við því sem sagt er, byggja á því eða leggja út af því. Smáatriði, eins og að taka sér í munn nafn þess sem lagði eitthvað af mörkum, getur einnig skipt máli. Að umorða það sem nemandi hefur sagt og spyrja hvort þetta sé skilið er einnig aðferð til að gefa til kynna að því hafi verið veitt athygli sem sagt var. Virka hlustun má einnig sýna með því að biðja aðra að bregðast við því sem nemandinn hafði fram að færa.
Virk hlustun er mikilvæg bæði til þess að sýna nemendum að framlag þeirra sé mikils virði, sem væntanlega hvetur þá til dáða, sem og vegna þess að þess er að í þessu efni er kennarinn nemendum mikilvæg fyrirmynd. Aldrei verður nógu oft hamrað á því hve mikilvægt er að kenna nemendum að hlusta á aðra og taka tillit til þeirra.
ADHD: Hjartanærandi aðferðir gefast vel | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar