10.5.2008 | 23:47
Orð dagsins - Japan ここに私は来る
Bloggar | Breytt 11.5.2008 kl. 00:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
6.5.2008 | 14:24
FBI´s Most Wanted :-)
Eins og kemur fram á síðunni www.1964.is leitar árgangur 1964 leitar nú logandi ljósi af einum félaga sinna. Fyrirhugað fermingarbarnamót í sumar er í hættu finnist viðkomandi ekki. Höfum við nú fengið FBI í lið með okkur
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
30.4.2008 | 06:41
Maður mánaðarins ( KK ) og dagurinn í dag, 30. apríl + www.1964.is
Í dag, 30. apríl, er 30 ár frá því að ég fermdist! Já ég endurtek 30 ár! Ég veit ég lít ekki út fyrir að vera deginum eldri en tuttuguog...... en svona bara er þetta. Til hamingju allir úr árgangi 1964! Þessara merku tímamóta verður minnst með frábæru fermingarbarnamóti um sjómannadagshelgina n.k. Og þá er komið að því að kynna mann aprílmánaðar en það er að sjálfsögðu félagi KK frá Sjónarhóli ( Kristján Jónsson Kristjánsson ). Það er margt hægt að segja um kappann en ég ætla að láta eitt duga. Hann er uppspretta óþrjótandi hugmynda! ( læt vera að segja hvað verður um þær allar ) Nýjasta afurð KK er vefurinn www.1964.is frábær hugmynd sem ég vona svo sannarlega að slái í gegn og Kiddi geti selt. Þetta er vefur árgangs 1964 hér í Neskaupstað, samanstendur hann af rúmlega 50 sjálfstæðum heimasíðum hvers og eins okkar úr árganginum. En sjón er sögu ríkari, endilega skoðið síðuna og gefið mér komment á hvað ykkur finnst. KK - maður apríl mánaðar.
Meðfylgjandi mynd er af hluta þessa frábæra árgangs, þeir sem fermdust fyrir hádegi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 06:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
29.4.2008 | 13:16
Orð dagins - nafnið Draupnir
Gísli félagi minn Gíslason ( http://gisligislason.blog.is/blog/gisligislason/ ) skrifaði nýlega um sjaldgæf nöfn. Síðan þegar vinur okkar hann Draupnir Rúnar brilleraði bætti Gísli við færslu þar sem fram kemur að pabbi Draupnis hafi verið fyrstur Íslendinga til að bera nafnið! En hvaðan kemur nafnið og hvað merkir það.
Draupnir þýðir "sá sem af drýpur". Draupnir er ( eða var ) gylltur hringur Óðins í norrænni goðafræði. Hringur þessi var þannig í gerðinni að níunda hverja nótt drupu af honum átta aðrir gullhringir. Aðrir einkennisgripir Óðins eru atgeirinn Gugnir, hrafnarnir tveir Huginn og Muninn og hinn áttfætti hestur Sleipnir.Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
23.4.2008 | 16:24
Draupnir! My man!
Hommalegra en hommalegt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
22.4.2008 | 12:54
Orð dagsins - feðraorlof - frábær reynsla
Feðraorlof er hin mesta snilld! Ég varð þeirrar ánægju aðnjótandi 1. ágúst s.l. að verða pabbi, reyndar ekki í fyrsta sinn, samtals eigum við hjónin nú 6 stráka. En ég er nú að taka feðraorlof í fyrsta sinn. Ég held að nú séu liðin 7 ár síðan feður gátu farið að taka orlof. Þvílíkt gæfuspor! Við feðgarnir, ég og Ýmir, erum búnir að vera heima í mánuð og eigum enn tvo eftir. Þetta er búið að vera mikil lífsreynsla og mjög gaman. Ég hafði hlakkað mikið til þessa tíma og var spenntur að sjá hvernig gengi. So far sooooooo goooood. Já þetta er ótrúlega gaman. Ég hreinlega trúi því ekki að nokkrir feður sleppi þessu einstæða tækifæri til að vera með barni sínu eða börnum! Ekki það að svífum á skýi og skemmtum okkur allan daginn. Nei það er svo sannarlega nóg að gera en þetta er bara svo gaman. Ég hélt reyndar að ég hefði kannski örlítið meiri tíma í ýmislegt, t.d. bloggið mitt, en eins og sést á bloggleysinu undanfarið þá var það hin mesta firra! Margir hafa eflaust einhverjar áhyggjur af starfinu sínu meðan þeir eru í orlofi, við kennarar hugsum t.d. um það hvort nemendur okkar séu í nógu góðum höndum. Ég er svo heppin að vita af mínum nemendum í betri höndum en mínum ef e-ð er þar sem betri helmingurinn af mér sinnir þeim!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
17.4.2008 | 21:06
Draupnir Rúnar fer á kostum
Já það verður ekki af félaga Draupni Rúnari skafið. Hann er hreint út sagt frábær í þessu myndbandi. Það er svo sem ekkert sem kemur á óvart, Draupnir hefur alltaf verið stórskemmtilegur strákur.
http://www.69.is/openlink.php?id=121250
Fyndnasta og skemmtilegasta Eurovision myndbandið " | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.4.2008 | 06:48
Til hamingju
Þróttur í Neskaupstað Íslandsmeistari | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.4.2008 | 07:12
Áfram Þróttur!!
Reykjavíkur-Þróttur jafnaði metin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.4.2008 | 11:02
Orð dagsins - Núll
Já það eru erfiðir tímar hjá okkur Arsenal mönnum þessa dagana. En eitt árið þurfum við að bíta í súra eplið og sitja eftir með sárt ennið! ( eða bara eins og einhver snillingurinn sagði, "...sitja eftir með súrt eplið...) Þriðja árið í röð og enginn titill = Núll. Við getum huggað okkur við það að við erum með skemmtilegasta liðið, en það er bara ekki nóg. Að sjálfsögðu viljum við titla líka. Eins og allir sem e-ð vit hafa á fótbolta hafa séð undanfarið vantaði bara eitt í liðið okkar undanfarið, lukkuna, en hún hefur gengið til liðs við hin liðin. En aftur að orði dagsins, Núll. Núll er ansi merkilegur stafur, stundum merkir hann ekkert, ef við bætum núlli aftan við heila tölu tífaldast hún, ef núllin eru tvö þá hundraðfaldast tala. Skrítin tala þessi núll. Ýmislegt fleira má segja um núll t.d.:
Í stærðfræðinni er núll stundum markverð tala og stundum ekki.
Núll er slétt tala.
Núll er hvorki jákvæð né neikvæð tala.
Við Íslendingar höfum fengið núll stig í Júróvisjón ( held meira að segja tvisvar sinnum ).
Það hafa reyndar Norðmenn líka gert. 1980, hér er núll meira að segja síðasti tölustafur ártalsins, sendu Norðmenn þetta frábæra lag í Eurovision. Því miður fannst engum öðrum það frábært. Saminn Samid Ædnan fer hér á kostum, en því miður núll stig.
Á frjálsa alfræðiritsvefnum Wikipedia stendur eftirfarandi um núll:
Núll eða sifja er eina talan, sem hvorki er já- né neikvæð og er samlagningarhlutleysa. Táknað með tölustafnum 0. Telst af sumum til náttúrlegra talna. Orðið sifja á sér samt lengri sögu en orðið núll, og þekkist hún aftur til landnámsaldar.Orðið, rétt eins og nafn talna í íslensku er upphaflega komið úr arabísku, og er þar ritað صيپر, eða svo gott sem. Orðið hefur þó tekið sér bólfestu í fleiri málum en íslensku, en í ensku er það þekkt sem cypher, sem þýðir dulmál. Þó er ekki hægt að segja að annað hvort málið hafi þýtt merkinguna betur en hitt, því að orðið þýðir upprunalega dulið. Dulmál eru augljóslega dulin þeim sem að áttu ekki að geta ráðið þau, en enn fremur er talan 0 dulin öllum sem að leggja metnað í að reyna að skilja hana, þar með talið Aröbunum sem að byrjuðu að kalla hana sifju.Þessu orði er jafnan skeytt aftan við orð eins og nafn-sifjar og merkir þar tengsl, þ.e. hvaðan nafnið er upprunið. Önnur dæmi um þetta er ættsifjar og orðsifjar.Sifjar (eða Sif) var einnig ein Ásynjanna í norrænni goðafræði, og var kona Þórs. Það nafn er skylt sifjar, í þeirri merkingu þar sem það merkir mágsemdir eða tengsl, nafnið þýðir í raun frændkona.
en nú er ég farinn að bulla of mikið svo mál er að linni.
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 13:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar