Færsluflokkur: Bloggar
30.3.2008 | 13:38
Orð dagsins - lóan er komin
Lóan er komin að kveða burt snjóinn, að kveða burt leiðindin, það getur hún. Hún hefur sagt mér, að senn komi spóinn, sólskin í dali og blómstur í tún. Hún hefir sagt mér til syndanna minna, ég sofi of mikið og vinni ekki hót. Hún hefir sagt mér að vakna og vinna og vonglaður taka nú sumrinu mót. |
Fyrstu stelkarnir sáust í Hornafirði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
30.3.2008 | 13:34
Söfnum fyrir lögbrjóta
Söfnun fyrir Hannes Hólmstein | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 31.3.2008 kl. 16:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.3.2008 | 08:18
Orð dagsins - Nafnagáta
Mig minnir að karl faðir minn hafi laumað þessari vísu að mér. Í hverri línu er að finna eitt karlmannsnafn:
Einn í dufti ávallt skríður
annar skort á mörgu líður
oft hinn þriðja eykir draga
auga úr kind vill fjórði naga
er sá fimmti aðkomandi
ætla ég sjötti í veggnum standi
sjöundi gamall alltaf er
áttunda á hverri nál þú sérð
níundi múgur nefnist manns
nafn ber tíundi skaparans
ellefti verður aldrei beinn
á þeim tólfta er saur ei neinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
28.3.2008 | 10:17
Orð dagsins - Salka Valka
Salka Valka er ein þekktasta og vinsælasta saga Halldórs Laxness og kannski upphafið að alþjóðlegri frægð hans. tilvitnunin í síðasta bloggi kemur einmitt frá Sölku: þegar öllu er á botninn hvolft þá er lífið þó umfram alt saltfiskur en ekki draumaríngl. Á þetta ekki vel við einmitt í dag þegar allt er að fara til and.... í þjóðfélaginu. Hafa þarf fyrir hlutunum og ekki bara sitja með hendur í skauti og bíða!!
Gunnar vinur minn Þorsteinsson kom með góða tillögu að upphafsmanni orðanna - lífið er saltfiskur - Guðjón heitinn Marteinsson. Ekki efa ég að Gauji hefur örugglega oft sagt þetta ( allavega hugsað ) í saltfiskverkuninni í den en upphafið kemur frá orðsnillingnum Halldóri Laxness.
Ekkert á jörðinni er eins yndislegt og sönn ást milli pilts og stúlku í góðu veðri um nótt á vori, þegar hestarnir eru sofnaðir í túnunum. ( einnig úr Sölku Völku )
Þrá er sauðkindin en hvað er það á móts við kvenkindina. ( Bjartur í Sumarhúsum - sjálfstætt fólk )
Orðsnilld.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
27.3.2008 | 16:39
Orð dagsins - Lífið er saltfiskur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
26.3.2008 | 13:38
blogg!!
Ég sagði fyrir rúmri viku að bloggfríi væri lokið. Það reyndist algjört kjaftæði. En nú er stefnan sett á betrumbætur! Reyndar hét ég því er ég fór af stað með síðuna að blogga aldrei á hefðbundinn hátt heldur vera með útúrsnúninga, æsa menn upp og þykjast voða merkilegur. Þetta heit mitt heldur ekki núna, því þetta verður "hefðbundið blogg" um s.l. viku. Nýliðin vika var alveg meiriháttar en mjög erfið líka. Eins og ég kom að áður fór ég til Keflavíkur þar sem næst elsti sonur minn, Maríus Þór, var fermdur á Pálmasunnudag. Síðan á skírdag var elsti stjúpsonur minn, Jón Þór, fermdur. Á laugardeginum var síðan önnur fermingarveisla fyrir Maríus ( norðfirski leggurinn ). Allir sem haldið hafa fermingarveislur vita að þeim fylgir töluverð vinna, hvað þá að halda tvær á þremur dögum. En eins og ég hef sagt áður er ég kvæntur kjarnorku konu og allt gekk frábærlega. Auðvitað gátum við þetta ekki tvö og nutum við dyggrar aðstoðar systkina Lilju ( Sigrúnu, Alla og Maríu ), Maddýjar tengdó, Salnýjar svilkonu o.fl. Ólöf Ósk dóttir Sigrúnar var t.d. mjög dugleg að hjálpa til með litlu grislingana og Kobbi lét ekki sitt eftir liggja. Elsku vinir án ykkar hefði þetta ekki gengið - takk takk . Sigrún kom ásamt börnum strax á mánudeginum til að hjálpa, Lilja og tengdó voru þá búnar að baka töluvert en nóg var eftir enda töluvert á annað hundrað gestir væntanlegir, samanlagt! Veislan hans Jóns Þórs var síðan haldin í hátíðarsal Nesskóla en Maríusar veisla í Sigfúsarhúsi. Gengu veislurnar í alla staði frábærlega og fermingardrengirnir voru alsælir. Meðfylgjandi er hér mynd af köppunum.
Bloggar | Breytt 31.3.2008 kl. 20:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.3.2008 | 22:04
Veðurblíða - Orð dagsins
Undanfarna daga hefur verið einmuna veðurblíða á öllu landinu. Veðrið og útsýnið er ég flaug frá Egilsstöðum til Reykjavíkur s.l. laugardag var frábært og flugið eftir því. Tók m.a. meðfylgjandi mynd úr flugvélinni. Náttúrufegurð landsins okkar er einstök og því helga ég Íslandi orð dagsins.
Ísland er land þitt
Ísland er land þitt, og ávallt þú geymir
Ísland í huga þér, hvar sem þú ferð.
Ísland er landið sem ungan þig dreymir,
Ísland í vonanna birtu þú sérð,
Ísland í sumarsins algræna skrúði,
Ísland með blikandi norðljósa traf.
Ísland að feðranna afrekum hlúði,
Ísland er foldin, sem lífið þér gaf.
Íslensk er þjóðin sem arfinn þinn geymir
Íslensk er tunga þín skír eins og gull.
Íslensk er sú lind,sem um æðar þér streymir.
Íslensk er vonin, af bjartsýni full.
Íslensk er vornóttin, albjört sem dagur,
Íslensk er lundin með karlmennskuþor.
Íslensk er vísan, hinn íslenski bragur.
Íslensk er trúin á frelsisins vor.
Ísland er land þitt, því aldrei skal gleyma
Íslandi helgar þú krafta og starf
Íslenska þjóð, þér er ætlað að geyma
íslenska tungu, hinn dýrasta arf.
Ísland sé blessað um aldanna raðir,
íslenska moldin, er lífið þér gaf.
Ísland sé falið þér, eilífi faðir.
Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf.
Magnús Þór Sigmundsson / Margrét Jónsdóttir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
17.3.2008 | 20:28
Bloggfríi lokið
"I´ll be back" er ein af þessum töffarasetningum úr bíóinu. Schwarzenegger er líka ofurtöffari. En nóg um það, datt þessi setning í hug af því ég hef ekkert bloggað síðan fyrir helgi. Ástæðan er einföld en ég var við fermingu næstelsta sonar míns, Maríusar Þórs, í Keflavík. Flottur drengurinn ( myndin stækkar ef smellt er á hana )!!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.3.2008 | 19:19
Myndagáta
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
14.3.2008 | 10:25
Orðið í dag - Vísnagáta aftur
María vinkona mín Bjarnadóttir er mjög hrifin af vísnagátum og var ekki lengi að leysa þessa með asnann en hvernig skyldi henni ganga núna? Á www.djupivogur.is er að finna nokkrar vísnagátur, m.a. þessa er fer hér á eftir. Sama orðið er að finna í öllum línunum ( lína 2 er erfið nema fólk sé kunnugt staðháttum í Berufirði ).
Verður augum oft að bráð,
austan Berufjarðar sést.
ferðast vítt um loft og láð,
læra milli unir bezt.
endilega skellið hugmyndum að svari í athugasemdir.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.12.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 63001
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar